Silungur í gráðaostasósu

Hráefni:

700gr. Silungaflök,  roðlaus og beinlaus.

1 dós sveppir

Púrrulaukur

Gráðaostur

1/2 l. rjómi

ca 200 gr. steinalaus vínber

Hveiti

Salt

Aðferð:

Hráefnið

1.  Steikja sveppi og púrrulauk úr smjöri og setja síðan í skál

2.  Strá salti yfir flökin og velta þeim síðan upp úr hveiti

3.  Steikja flökin á pönnu og setja síðan á disk

4.  Laukurinn, sveppirnir, gráðaosturinn á pönnuna og rjóminn yfir

5.  Láta ostinn bráðna og leyfa að krauma aðeins

6.  Silungurinn út í og leyft að krauma aðeins

7.  Vínberin skorin í tvennt og stráð yfir.

Borið fram með góðu brauði og hrísgrjónum

Prentvæn útgáfa