Hreindýrapiparsteik.

Þessi réttur er algjört sælgæti.   Fyrir ca fjóra

 

Hráefni:

Hreindyrakjöt 7 - 800 gr

Sveppir  ein dós

Rjómi 1/2 l

Villibráðarkraftur ( Oscar er góður ) , salt og svartur pipar

Aðferð

Snyrta steikina - fjarlægja himnur sinar og fitu.  Hér er verið að fara að steikja lund þannig að snyrtingin er lítil vinna.

Skera steikina í hæfilega bita og mala svartan pipar yfir

Ekki spara piparinn.  Láta steikina svo standa a.m.k. klukkutíma

Steikja sveppi og taka þá síðan af pönnunni

Snöggsjóða kartöflur ( 15 - 16 mín ) og skera í sneiðar

Steikja kartöflusneiðarnar á pönnu - Láta þær brúnast vel

Steikin á pönnuna og snöggsteikt

Svolitlu salti stráð yfir

Steikin er síðan tekin til hliðar,sveppirnir settir á pönnuna og rjóma hellt yfir

Látið krauma vel og bragðbætt með villibráðarkrafti.  Smakka til og salta eða pipra ef vill.   Hér er ekki verra að hafa vel af pipar.  Láta krauma vel saman

Kjötið síðan sett út í og leyft að krauma ca tvær mín.  ( Hef raunar notað gúllash í þennan rétt og þá leyfði ég því að krauma einar 20 mín )

Klárt.  Ekki verra að hafa gott ávaxtasalat eða Valdorf með

Prentvæn útgáfa