Grafin gæs

Hér er uppskrift af grafinni gæs sem ég fékk hjá veiðimanni austur á Fáskrúðsfirði nú í haust.  Tær snilld.

Auk krydds í kryddblönduna þarf að hafa gróft salt við hendina og að sjálfsögðu gæsabringur.

Kryddblandan:  Svartur pipar - grænn pipar - timjan - dill - salt - basil - sykur - oregano - sinnepsfræ.  Ein matskeið af hverju fyrir sig.

Dugar fyrir 4 - 6 bringur

Hreinsa bringurnar vel.  Fjarlægja himnur og sinar

 

Salta bringurnar vel á báðum hliðum með grófu salti og láta standa í ca 3 klst

 

Svona ætti þetta að líta út eftir söltunartímann.  Saltið dregur vökva úr bringunum

Skola síðan saltið vel af með köldu vatni

Hræra öllu kryddinu vel saman í skál.

Þekja kjötið vel með kryddblöndunnni

Pakka krydduðum bringunum inn í álpappír og geyma í kæliskáp í þrjá sólarhringa.  Snúa við á 12 tíma fresti

Borið fram með brauði og graflaxsósu