Hreindýra / gæsabollur
600 gr hreindýra eða gæsahakk
4 msk brauðrasp
1 dl mjólk eða rjómi
1 egg
1 tsk Oscar villikraftur
2 msk soyasósa
1 tsk timian
1 tsk villibráðakrydd
1 - 2 msk hveiti
Salt og svartur pipar
Hræra öllu vel saman.
Steikja litlar bollur og setja í pottt með heitu vatni þannig að rétt fljóti yfir og sjóða í ca 20 mín. Þá eru bollurnar teknar úr vatninu. Hrista saman ca 3-4 msk hveiti og mjólk eða rjóma og bæta út í soðið þar til úr verður hæfilega þykk sósa. Smakka hana til og bæta í salti - pipar - villikrafti og kanski sósulit eftir þörfum.
Gott að hafa brúnaðar kartöflur með eða hrísgrjón.